Dagur íslenskrar tungu

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Í MB í dag á degi íslenskrar tungu fór fram ljóðasamkeppni á meðal nemenda. Keppnin fór þannig fram að allir hópar fengu eina blaðsíðu úr sömu bók og áttu að vinna með þau orð sem þar komu fyrir. Mikil ánægja var með þátttöku nemenda sem unnu að ljóðagerðinni bæði sem einstaklings- og hópaverkefni.  Sigurvegarinn var Eygló Sunna með eftirfarandi ljóð:

Hún hraðaði sér

í gegnum manngrúann

með farangur sinn í báðum

höndum.

Hún tók ekki eftir manninum

fyrr en hann rakst næstum á hana.

Hún stansaði og leit á hann

sljóum augum, óttinn

smaug um hana alla.

Hún var búin að gleyma því.