Dimmission

Ritstjórn Fréttir

IMG_2708Nemendur sem útskrifast í vor dimmittera í dag. Krakkarnir fóru um bæinn og vöktu kennara með söng og glensi í morgun og borðuðu svo morgunverð með kennurum og starfsfólki í skólanum. Síðan var haldið út í vorið og litið við á ýmsum stöðum í bænum. Klukkan 11.20 hefst svo skemmtidagskrá dimmittenda í  hátíðarsal skólans og eru allir velkomnir.

Útskrift verður föstudaginn 5. júní og hefst kl. 11.00.