Dimmiternig í MB

Ritstjórn Fréttir

Nemendur skólans sem verða brautskráðir 10. júní eru að dimmitera í dag.  Þau byrjuðu fjörið í nótt og  kl. 7:30 var tekið á móti þeim í skólanum með morgunmat af starfsmönnum skólans.  Setið var þar góða stund, rætt saman og gætt sér á góðgæti af morgunverðarhlaðborðinu.  Eftir það fóru nemendur um bæinn í kerru sem dregin var af dráttarvél.   Þau fóru meðal annars í grunnskólann og á dvalarheimilið. Hópurinn kom svo til baka í skólann og var með skemmtun á sal skólans.

zp8497586rq