Foreldradagur Heimilis og skóla haldinn í MB

Ritstjórn Fréttir

photo 1Hvernig geta foreldrar unnið að forvörnum og stuðlað að velferð barna?
Foreldradagur Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, var  haldinn í þriðja sinn þann 22. nóvember sl. og  fór dagskráin fram í Menntaskóla Borgarfjarðar. Markmið foreldradagsins var nú sem endranær að bjóða upp á vandaða og gagnlega fræðslu fyrir foreldra. Boðið var upp á fræðsluerindi og málstofur um forvarnir í víðu samhengi. Fjallað var um hvernig  foreldrar geti stuðlað að forvörnum, tekið á einelti, netfíkn, vímuefnavanda og öðrum erfiðleikum.
Dagskráin hófst á því að  Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, setti
samkomuna. Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, kynnti nýjar niðurstöður frá Rannsóknum og greiningu og Jóna Karen Sverrisdóttir, ráðgjafi hjá Capacent, kynnti helstu niðurstöður nýrrar SAFT könnunar 2013. Þá tók við vinna í málstofum og gátu þátttakendur valið úr þremur málstofum; um netfíkn og hegðun á netinu, einelti og forvarnir gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Stjórnendur málstofanna voru Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur, Páll Ólafsson félagsráðgjafi og Guðrún Björg Ágústsdóttir, ráðgjafi hjá Vímulausri æsku – Foreldrahúsi. Dagskráin var vel sótt.