Gestkvæmt í MB

Ritstjórn Fréttir

IMG_2544Árlega býður Menntaskóli Borgarfjarðar nemendum tíundu bekkja í nágrenninu í heimsókn í skólann. Gestirnir ganga um skólahúsnæðið, líta í kennslustundir og fá fræðslu um skólastarfið. Um 70 nemendur úr Grunnskóla Borgarness, Varmalandsskóla, Kleppjárnsreykjaskóla og Auðarskóla í Dölum komu í skólann nú í vikunni og var sú heimsókn skemmtileg og vel heppnuð í alla staði.
Á miðvikudagskvöldið var svo kynningarfundur um starf skólans fyrir foreldra og forráðamenn tíundubekkinga. Á fundinum, sem var ágætlega sóttur, gerði Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, skólameistari, grein fyrir helstu áherslum í skólastarfinu og sérstöðu skólans miðað við aðra framhaldsskóla. Dr. Vífill Karlsson, formaður stjórnar MB, sýndi fram á með sterkum rökum, hversu mikill sparnaður felst í því fyrir fjölskyldur að unga fólkið stundi  framhaldsskólanám í heimabyggð.