Haustönn 2012 hefst 20. ágúst

Ritstjórn Fréttir

Mánudaginn 20. ágúst nk. eiga nýnemar að koma til starfa kl. 09:00 en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks.  Að morgunverði loknum fá nýnemar afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið.

Eldri nemendur koma til starfa sama dag kl. 11:00 og fá afhentar stundaskrár, lykilorð og önnur tilheyrandi gögn.

Skólastarf hefst þriðjudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu.

Nemendur athugið – lykilorðum í INNU verður breytt og geta nemendur nálgast ný lykilorð á skrifstofu skólans.