Haustönn 2023 – skólabyrjun

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Skólastarf hefst á haustönn 2023 með móttöku nýnema miðvikudaginn 16. ágúst klukkan 10:00. Dagurinn hefst með morgunhressingu nýnema og starfsfólks. Að morgunverði loknum fá nýnemar afhentar stundaskrár, aðrar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið og fá kennslu á helstu kerfi skólans.

Við óskum eftir því að nemendur mæti með tölvurnar sínar og snjalltæki þennan dag.

Eldri nemendur geta nálgast stundatöflurnar sínar á INNU.is föstudaginn 11. ágúst og er einnig velkomið að kíkja til okkar hér í MB. Bókalistar eru þegar komnir inná heimasíðu skólans. Ef einhver óvissa er með bókalistann þá endilega verið í sambandi við okkur.  Skólastarf hefst svo samkvæmt stundatöflu fimmtudaginn 17. ágúst.

Fimmtudaginn 24. ágúst kl. 20:00 verður sérstakur kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema. Fundurinn verður í stofu 101.

Allar nánari upplýsingar um skólastarfið er að finna á heimasíðu skólans.