Innritun á starfsbraut

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Innritun nemenda á starfsbraut í Menntaskóla Borgarfjarðar hefst í dag  1. febrúar og stendur til 28. febrúar. Umsækjendur sækja um skólavist á menntagatt.is 
Umsækjendum og foreldrum eða forráðamönnum  er bent á að hafa samband við skrifstofu skólans ef spurningar vakna. Einnig eru þeir velkomnir  að heimsækja skólann og kynna sér starf hans á innritunartímabilinu.