Jöfnunarstyrkur – opið fyrir umsóknir

Ritstjórn Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks á skólaárinu 2015 – 2016.
Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum
og / eða INNU. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2015 er til 15. október næstkomandi.  
Þið getið kynnt ykkur reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is
auk þess sem við á skrifstofu MB aðstoðum og gefum allar upplýsingar eftir bestu getu.