Jöfnunarstyrkur til náms

Ritstjórn Fréttir

Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk til náms á vorönn 2013 er til 15. febrúar næstkomandi. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu. Um er að ræða annars vegar dvalarstyrk fyrir þá sem verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu vegna náms og hins vegar akstursstyrk fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla. Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN ( www.lin.is)

zp8497586rq