Kynningarfundur um stöðu og þróun vímuefnaneyslu í Borgarbyggð

Ritstjórn Fréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar og grunnskólar Borgarbyggðar boða til kynningar á niðurstöðum rannsókna á vímuefnaneyslu meðal nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar og nemenda í efstu bekkjum grunnskóla Borgarbyggðar.  Kynningin fer fram kl. 17:00 til 18:00 miðvikudaginn 19. október nk. í Menntaskóla Borgarfjarðar.

Jón Sigfússon, framkvæmdastjóri Rannsókna og greininga, kynnir niðurstöðurnar og fjallar um áhrifavalda á vímuefnaneyslu ungs fólks.