Lokaverkefni – kynning

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða lausn viðfangsefna og undirbúa þá enn frekar undir háskólanám.

Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru mjög fjölbreytt og áhugaverð, m.a. má nefna; merkingu drauma eftir trúarbrögðum, alheiminn og fyrirbæri hans, Auður Haralds, ævi og störf, NPL augnhreyfingar, listmeðferð, áhrif eldgosa á loftslag, saga Gypsy Rose, mikilvægi hreyfingar 13-20 ára, körfuboltamenning í USA og Evrópu, ævi Díönu prinsessu, svartidauði, hreyfiþroski barna, samband tölvuleikja og kvikmynda, almannavarnir, uppruni og tilgangur, saga Ed og Lorraine Worren, Joseon tímabilið í Kóreu, kvíði og kvíðaraskanir, Viktor Bout – kaupmaður dauðans . Nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu fyrirspurnum á málstofu sem haldin var í dag miðvikudaginn 21. febrúar.  Kynningarnar voru afar góðar, áhugaverðar og augljóst að nemendur hafa lagt metnað í vinnuna.