Lokaverkefni – málstofur á þriðjudag og fimmtudag

Ritstjórn Fréttir

IMG_0448Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða lausn viðfangsefna og undirbúa þá enn frekar undir háskólanám.

Nú í vikunni kynna nemendur í Lok 104 viðfangsefni sín á málstofum sem haldnar verða þriðjudaginn 11. mars og fimmtudaginn 13. mars. Málstofurnar verða í stofu 101 og hefjast klukkan 10:00 báða dagana. Öllum er frjálst að koma og fylgjast með kynningum á verkefnum og umræðum um þau.

Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt að vanda. Meðal þess sem nemendur fjalla um að þessu sinni má nefna sögu ljósmyndunar á Íslandi, einkenni og orsakir átröskunarsjúkdóma, áhrif ævintýra á börn, hlýnun jarðar, Frans Kafka, erfðabreytt matvæli, hreyfingu aldraðra, áhrif fæðu á ýmsa sjúkdóma, táknmál heyrnarlausra, bandaríska risafyrirtækið Apple o.fl., o.fl.