Lokaverkefni – málstofur

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða lausn viðfangsefna og undirbúa þá enn frekar undir háskólanám.

Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt má þar nefna; MS sjúkdóminn, geðhvarfasýki, stera notkun, sykursýki 1, ferjusiglingar á Breiðafirði, veganisma, sögu Edinborgar, kvikmyndategundir, heimilisofbeldi, mjólkursamsöluna og sögu verslunar í Dalasýslu. Nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu fyrirspurnum á málstofum vikunnar.  Kynningarnar voru góðar og augljóst að nemendur hafa lagt mikinn metnað í vinnuna.