Nemendur gera skoðanakönnun í samstarfi við SSV

Ritstjórn Fréttir

22052014380Nýlega kynnti Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi niðurstöður skoðanakönnunar sem unnin var með nemendum og Bjarna Þór Traustasyni kennara við Menntaskóla Borgarfjarðar.
Aðalmarkmið könnunarinnar var að kanna hvað viðskiptavinir sem búa utan Borgarbyggðar versla mikið við smásöluverslanir í Borgarnesi. Í svæðahagfræðilegu tilliti segir það að hvað miklu leyti smásöluverslun í Borgarnesi er útflutningsfyrirtæki sveitarfélagsins. Þess utan var hægt að greina ýmsa áhrifaþætti á kauphegðun viðskiptavinanna.

Helstu niðurstöður könnunarinnar eru sem hér segir:

• Þátttakendur í könnuninni voru 461 talsins

• Þeir voru teknir tali við Nettó og Bónus Borgarnesi

• 28% af veltu smávöruverslunar var útflutningur

• Bónus í Borgarnesi er meira útflutningsfyrirtæki en Nettó

• Útlendingar versla (samt) frekar hjá Nettó en Bónus

• Verslun hvers og eins var að jafnaði 5.407 kr. í báðum verslunum

• Fólk í sambúð verslar fyrir 21% hærri upphæð en þeir sem búa einir

• Laugardagsverslun hvers og eins er minni en fimmtudagsverslun

• Föstudagsverslun hvers og eins er meiri en hina dagana

• Verslun hvers og eins var meiri í Bónus en Nettó –sem nam 2.280 kr.

• Íslendingar eyða minna en útlendingar í hverri verslunarferð

• Þeir sem búa á Íslandi eyða minna en þeir sem búa í öðrum löndum

• Eldra fólk eyðir meira en það yngra þar til það verður 52 ára en minna eftir það

Rannsóknin fór þannig fram nemendur MB voru því fengnir til að safna gögnum með þeim hætti
að taka viðskiptavini tali þegar þeir komu út úr verslununum. Síðan skráðu þeir gögnin, greindu og
kynntu niðurstöður í kennslustund. Þetta unnu nemendur í nánu samstarfi við tölfræðikennara sinn
og starfsmann SSV sem sáu um leiðbeiningar, leiðsögn og endurgjöf.

Verkefnið er liður í því að tengja saman atvinnulíf og skóla. Þar sem þetta var frumraun var eingöngu
safnað upplýsingum frá Borgarnesi en næst verður gögnum einnig safnað á Akranesi, Snæfellsnesi og
í Dölum. Með því næst áhugaverður samanburður á smásöluverslun innan Vesturlands.

Á myndinni sést Vífill Karlsson greina frá niðurstöðum könnunarinnar. Skýrsluna má lesa hér:  Vidskiptavinir verslana Skyrsla