Ný stjórn nemendafélags MB

Ritstjórn Fréttir

Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2016 -17 fóru fram fyrir skemmstu. Nýju stjórnina skipa þau Steinþór Logi Arnarsson formaður, Dagbjört Diljá Haraldsdóttir gjaldkeri, Sveinbjörn Sigurðsson skemmtanastjóri og Guðrún Gróa Sigurðardóttir ritari.  Í haust verðIMG_0328ur svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema.

Nemendafélagið eða NMB hefur verið starfrækt frá stofnun skólans árið 2007. Stjórn þess er tengiliður nemenda skólans og stjórnenda hans auk þess sem hún ber hita og þunga af fjölbreyttu félagslífi í skólanum. Sem dæmi um viðburði sem NMB hefur staðið fyrir árlega má nefna nýnemaferð, söngkeppni, Lazer Tag mót, West Side sem er íþróttakeppni og sameiginlegt ball þriggja skóla á Vesturlandi, árshátíð og vordaga. Auk þess aðstoðar nemendafélagið við uppsetningu leiksýningar sem Leikfélag MB stendur fyrir ár hvert. Margir viðburðir NMB eru haldnir í tengslum við samstarf við aðra framhaldsskóla og á myndinni má sjá fulltrúa MB í söngkeppni framhaldsskóla 2016.