Nýjar leiðir í safnastarfi

Ritstjórn Fréttir

Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Safnahúss hélt þann 12.sept. s.l. fyrirlestur fyrir nemendur í Sögu 204 hjá MB. Erindið fjallaði um ævi sr. Magnúsar Andréssonar á Gilsbakka (1845-1922) og var hugsað sem innlegg í umfjöllun kennara um samtíma hans. Í Safnahúsi hefur verið unnin mikil heimildavinna vegna uppsetningar sýningar um sr. Magnús, en hún var opnuð í vor. Var þetta kærkomið tækifæri til að kynna hluta þess fróðleiks til nemenda við skólann.