Í gær heimsóttu okkur, í MB, fulltrúar 10 ára stúdenta. Okkur fannst nú eins og þau hafi rétt verið að klára síðustu verkefnin, svona líður tíminn. Það var reglulega ánægjulegt að hitta þessa frábæru fyrrverandi nemendur MB. Skólinn stefnir að því, í samvinnu við útskrifaða nemendur, að halda góðum tengslum við sína fyrrverandi nemendur og hittast reglulega á a.mk. 10 …
Náms og skemmtiferð til Dublin
Dagana 24.- 28. apríl lagði 18 manna hópur starfsfólks MB, auk nokkurra maka, í námsferð til Dublin á Írlandi með það meginmarkmið að heimsækja skóla og stofnanir ásamt því að eiga góða daga saman. KVAN – travel skipulagði ferðina með okkur. Flogið var út snemma á miðvikudagsmorgni og þann dag var farið í heimsókn í ráðuneyti menntamála í Dublin. Þar …
Innritun á haustönn 2024
Innritun nýnema (nemendur úr 10. bekk) er hafin. Innritunin stendur frá 20. mars til og með 7. júní. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 433-7700 Innritun eldri nema stendur frá 15. janúar til og með 31. maí 2024. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans …
Ný stjórn NMB
Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2024 – 2025 fóru fram fyrir skemmstu. Nýju stjórnina skipa þau Ernir Daði Arnberg Sigurðsson formaður, Jónas Bjarki Reynisson gjaldkeri, Eiríkur Frímann Jónsson skemmtanastjóri og Marta Lukka Magnúsdóttir ritari. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til …
Ráðstefna þann 17. apríl 2024
Áhersla á STEM og STEAM nám og kennslu Sjá nánar hér! Nýsköpun í skólastarfi – Menntaskóli Borgarfjarðar (menntaborg.is)
Kennslustjóri á Starfsbraut
Kennslustjóri starfsbrautar hefur umsjón með faglegu starfi á Starfsbraut ásamt kennslu á brautinni. Með umsjón er átt við skipulagningu, samhæfingu og verkefnastjórnun á starfsbraut. Á starfsbraut er boðið upp á nám fyrir nemendur sem hafa greiningu fagaðila og geta ekki nýtt sér að fullu almennt nám framhaldsskóla. Markmið starfs á Starfsbraut er að bjóða upp á nám við hæfi bæði …
Við óskum eftir samstarfi.
Nemendum við Menntaskóla Borgarfjarðar hefur fjölgað verulega síðustu ár, ekki síst staðnemum. Þetta er ánægjuleg þróun og sérlega ánægjulegt að hingað sækja nemendur sem ekki eiga heimili í Borgarbyggð og þurfa annaðhvort að treysta á almenningssamgöngur eða að finna sér húsnæði í næsta nágrenni. Hér í Borgarnesi eru búsettir núna á vorönn milli 15 og 20 nemendur annaðhvort í húsnæði …
Opið hús – lífsnámsvika
Allir nemendur á stúdentsbrautum sitja fimm áfanga í Lífsnámi, eina viku á önn. Þar læra nemendur okkar á ýmislegt, allt frá jafnrétti og mannréttindum yfir í fjármál. Þessa vikuna er kenndur áfangin FJÁRVIT. Við leggjum mikið upp úr að Lífsnámsvikan sé jafn skemmtileg og hún er gagnleg. Markmiðið er að leggja grunn að því að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum …
Lokaverkefni – kynning
Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða …
Hluthafafundur MB
Fundarboð Boðað er til hluthafafundar Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. föstudaginn 16. febrúar 2024 nk. kl. 12:00. Staður: Menntaskóli Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, Borgarnesi Dagskrá Ákvörðun aðalfundar um kjör stjórnarmanna frá dags: 14.4.2023 borin undir fundarmenn til staðfestingar. Önnur mál löglega borin upp Borgarnesi 8. febrúar 2024 _______________________________ Bragi Þór Svavarsson, skólameistari