Pílagrímar í MB

Ritstjórn Fréttir

Næstkomandi föstudag halda nokkrir nemendur og kennarar til borgarinnar Lissabon í Portúgal á vegum Comeniusarverkefnisins Migration and cultural influence. Ferðin er síðasti liðurinn í verkefninu en nemendur úr MB fóru síðastliðið haust til Hollands á vegum verkefnisins og fyrir um ári síðan komu rúmlega 30 gestir í heimsókn til MB.

Lokapunkturinn að þessu sinni felst meðal annars í þriggja daga 85 km pílagrímsgöngu til Fatíma sem er helgur staður kaþólikka í Portúgal, nokkuð norðan viði Lissabon. Undanfarna mánuði hafa ferðalangar þjálfað sig upp til að geta gengið þessa leið. Einnig munu nemendur sýna verkefni sem þeir unnu í söguáfanganum sag104 um miðaldaborgina og skoða sig um í Lissabon og nágrenni. Fréttir verða sendar á vefinn meðan á ferðinni stendur.

zp8497586rq