Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar og mun hún hefja störf í haust.
Halldóra Lóa er með PMD Stjórnendaþjálfun frá Háskólanum í Reykjavik, MA í náms og starfsráðgjöf og B.ED Grunnskólakennarapróf. Halldóra hefur viðamikla reynslu af starfi innan skóla og hefur meðal annars starfað í þremur háskólum landsins. Síðustu ár hefur Halldóra Lóa verið Framkvæmdastýra kennslu- og upplýsingatæknisviðs Háskólans á Bifröst. Þar hefur hún leitt teymi sem sér um utanumhald og skipulagningu á þjónustu við nemendur og kennara háskólans.
Halldóra Lóa tekur við af Lilju S. Ólafsdóttur sem hefur verið aðstoðarskólameistari frá stofnun skólans, en hún lætur af störfum sem slík frá og með 31.7.2026.
