Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB

Bragi Þór Svavarsson Fréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar og Stéttarfélag Vesturlands  hafa endurnýjað samkomulag um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans.

Við í  Menntaskóla Borgarfjarðar eru þakklát fyrir þennan velvilja sem stjórn Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands sýnir nemendum MB.   Það er framsýnt stéttarfélag sem lætur sig varða andlega og/eða félagslega erfiðleika ungs fólks.

Framkvæmd er þannig háttað að tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaári. MB greiðir fyrsta tímann og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá, að hámarki.

Á meðfylgjandi mynd eru Bragi Þór Svavarsson skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands.