Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Í dag skrifuðu skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar og formaður/framkvæmdastjóri Stéttarfélags Vesturlands, fyrir hönd sjúkrasjóðs félagsins, undir samkomulag um stuðning við nemendur sem stunda nám í MB í formi endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Samningurinn gildir út skólaárið 2019-2020 og er hugsaður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla.

Gegn tilvísun frá Námsráðgjafa MB getur hver nemandi fengið endurgreiðslu eða styrk fyrir allt að fjórum sálfræðitímum á skólaári. Menntaskóli Borgarfjarðar greiðir fyrsta tímann en Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá tíma að hámarki. MB sér um að endurgreiða nemenda eða greiða sálfræðingi eftir því sem við á.

Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hefur styrkt nemendur MB með þessum hætti síðustu tvö skólaár en að þessu sinni var gerður samningur til tveggja ára.

Stjórnendur Menntaskóla Borgarfjarðar eru afar þakklátir aðilum Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands og vilja koma því á framfæri að styrkur sem þessi er ómetanlegur fyrir skólann.