Menntaskóli Borgarfjarðar og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hafa endurnýjað samstarf sitt um stuðning við nemendur í MB. Samningurinn felur í sér endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur sem þurfa á því að halda og er mikilvægur liður í að efla velferð og forvarnir innan skólans. Tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaárinu. MB greiðir fyrsta tímann og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá, að hámarki.Þessi samningur er okkur mjög mikilvægur og mikill stuðningur við nemendur og erum við afar þakklát Stéttarfélagi Vesturlands fyrir hann.
Í dag var samningurinn endurnýjaður til tveggja ára og á myndinni eru þau Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélag Vesturlands, Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og Bragi Þór Svavarsson skólameistari.
