Skíðaferð

Bragi Þór Svavarsson Fréttir

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar stendur hvert ár fyrir skíðaferð nemenda. Í ár var frábær þátttaka og hópur 40 nemenda fór á skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók á  mánudag og koma aftur heim á í kvöld. Þeim innan handar eru Frida og Ásta . Skein við sólu Skagafjörður og  krakkarnir gátu ekki verið heppnari með veður. Í næturgistingunni er svo spilað og notið samverunnar.  Myndir segja meira en mörg orð.