Skólabyrjun – haust 2017

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Föstudaginn 18. ágúst nk. eiga nýnemar að koma til starfa kl. 09:00 en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks.  Að morgunverði loknum fá nemendur (nýnemar) afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið.

Opnað verður fyrir stundaskrá eldri nema (INNA) föstudaginn 18. ágúst.

Bókalista haustannar má finna á heimasíðu skólans www.menntaborg.is

Skólastarf hefst mánudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu.

Fundur með foreldrum nýnema:   Sérstakur kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn þriðjudaginn 22. ágúst kl. 17.00.  Á fundinum verður farið yfir skólastarfið framundan og kynntir ákveðnir þættir í þjónustu skólans við nemendur. Fundurinn verður í stofu 100 í skólanum.