Skólastarf á vorönn 2016

Ritstjórn Fréttir

Skólastarf á vorönn hefst miðvikudaginn 6. janúar næstkomandi. Nýnemar fá stundaskrár sínar sendar í tölvupósti 4. janúar en kennsla hefst samkvæmt stundaskrá klukkan 8:20 þann 6. janúar. Stundaskrár eldri nemenda verða aðgengilegar í Innu mánudaginn 4. janúar 2016.

Skólagjöld fyrir vorönn eru 11.000 krónur og samanstanda af 7000 króna innritunargjaldi og 4000 króna tölvuumsjónargjaldi. Eindagi þessara gjalda er 5. janúar.

Nemendafélagsgjald fyrir vorönnina er 3000 krónur. Nemendur eru hvattir til að taka þátt í starfi nemendafélagsins og eiga þátt í að móta og efla félagslíf í MB.

Nemendur þurfa að vera með fartölvu í skólanum og fá aðgang að interneti og kennslukerfi skólans við upphaf skólagöngu. Nemendur sem ekki hafa fartölvu geta fengið lánaða tölvu í skólanum í eina kennslustund í senn samkvæmt ákvörðun kennara.

Bókalista og allar nánari upplýsingar um skólastarfið er að finna á heimasíðu skólans.