Þemadögum lokið

Ritstjórn Fréttir

Eins og fram hefur komið var heIMG_2816fðbundin kennsla lögð til hliðar nú í vikunni og þess í stað unnu nemendur að fjölbreyttum verkefnum innan skóla og utan. Í morgun var svo haldin nokkurs konar uppskeruhátíð þar sem nemendur kynntu afrakstur vinnunnar.  Loks var boðið upp á pylsur með öllu í mötuneytinu.

Það er mat bæði nemenda og kennara að þessir dagar hafi tekist vel og áætlanir eru uppi um að slíkt verði fastur liður í skólastarfinu.