Þitt er valið!

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Hvaða áfanga langar þig að taka á næstu önn? Á Innu eru komnir inn skylduáfangar næstu annar (nemenda í staðnámi) – heildarfjöldi eininga á önn eru 33 – 34 einingar. Einhverjir nemendur þurfa að velja 1 – 3 áfanga til viðbótar við skylduáfangana. Með vali staðfesta nemendur nám sitt á vorönn. Valið fer fram miðvikudaginn 20. október nk. Skoðið vel ykkar námsferil og þá áfanga sem eru í boði fyrir næstu önn (sjá https://menntaborg.is/namid/afangar-i-bodi/  Allir kenndir áfangar á vorönn eru í boði auk sjö sérstakra valáfanga (sjá auglýsingar á göngum og í tölvupósti).

Áfangarnir sem eru sérstakir valáfangar eru:

  • Enski boltinn – BOLT2EB04
  • Afþreyingarsálfræði – SÁLF1AÞ04
  • Lögfræði – LÖGF2LR05
  • Vísindaenska – ENSK3NV05
  • Útivist í snjó – ÚTIV1ÚS02
  • Rafíþróttir 2 – ÍÞRG1RÍ02
  • Stafræn listsköpun – LIST1IN02

Til þess að áfangi verði kenndur þarf fjöldinn að vera að lágmarki 10 nemendur.