Tvær úr MB í hópi afreksnema Háskóla Íslands

Bragi Þór SvavarssonFréttir

©Kristinn Ingvarsson

Við í Menntaskóla Borgarfjarðar erum einstaklega stolt af því að tveir fyrrverandi nemendur skólans, Eyrún Freyja Andradóttir og Hugrún Hanna Guðrúnardóttir, eru í hópi þeirra 29 nemenda sem í ár hljóta styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands.

Styrkirnir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem hafa skarað fram úr. Við val á styrkþegum er ekki eingöngu horft til námsárangurs heldur einnig til virkni í félagsstarfi og árangurs á öðrum sviðum. Alls bárust 55 umsóknir í ár og 29 nemendur úr 14 framhaldsskólum hlutu styrk. Hver styrkur nemur 400 þúsund krónum.

Eyrún Freyja Andradóttir brautskráðist frá Menntaskóla Borgarfjarðar í maí síðastliðnum. Við útskrift hlaut hún verðlaun fyrir bestan árangur í íslensku og félagsgreinum, fyrir vandaðasta lokaverkefni skólans auk Menntaverðlauna Háskóla Íslands. Eyrún hefur einnig verið virk í leiklistarstarfi, myndlist og tónlist. Hún hefur nú hafið nám í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Hugrún Hanna Guðrúnardóttir brautskráðist frá MB vorið 2025 og flutti þá útskriftarræðu fyrir hönd árgangsins. Hún var virk í félagslífi skólans á námsárunum og tók meðal annars þátt í leiklistarstarfi MB. Hugrún hefur nú hafið nám í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Það er okkur í MB mikið gleðiefni að sjá fyrrverandi nemendur skólans halda áfram að vaxa og dafna eftir útskrift. Árangur Eyrúnar og Hugrúnar er glæsilegur og við erum afar stolt af þeim báðum.

Við óskum þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna og velfarnaðar í náminu og því sem fram undan er.