Umsjónarmaður dreifnáms í Búðardal óskast

Ritstjórn Fréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í 80% starf til að hafa umsjón með dreifnámi við framhaldsskóladeild í Búðardal.

Í starfinu felst  m.a. dagleg umsjón með nemendum í Búðardal, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti við kennara MB, umsjón með námsaðstöðu og tækjabúnaði og umsjón með námslotum í Borgarnesi.

Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, menntun sem nýtist í starfi og hafa áhuga á að byggja upp dreifnám í Búðardal.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar gefur Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari, kolfinna@menntaborg.is eða í síma 8661314. Umsóknarfrestur er til 5. júlí nk. og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, 310 Borgarnesi eða á netfangið kolfinna@menntaborg.is

zp8497586rq