Upphaf skóla

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Skrifstofa MB hefur opnað eftir sumarfrí, hægt er að hafa samband við skólann með því að hringja eða senda tölvupóst. Eins væri bara gaman að sjá framan í eitt og eitt andlit.

Eins og fram kemur í skóladagatali hefst kennsla mánudaginn 17da ágúst. Nýnemar eiga að mæta á sal skólans klukkan 08:30, fá þar morgunhressingu, hitta umsjónarkennara og fá aðstoð við að skrá sig inn á kennslukerfi skólans. Við bendum nýnemum á að MJÖG mikilvægt er að hafa með sér tölvu og síma. Allir nemendur mæta svo í skólann samkvæmt stundaskrá klukkan 10:20 þennan mánudagsmorgun.  Allir nemendur á Starfsbraut mæta í sína stofu klukkan 10:00.

Tekið verður á móti nemendum á nýja Nemendagarða MB milli 16:00 og 18:00 sunnudaginn 16da ágúst og allan mánudaginn 17da ágúst.