Valáfanginn – Útivist í snjó

Bragi Þór Svavarsson Fréttir

Á vorönn 2020 er kenndur áfanginn Útivist í sjón, Í áfanganum er farið í eina vetrarferð með áherslu á skíðaiðkun. Áfanginn hefst á undirbúningi fyrir ferð af þessu tagi og farið yfir atriði sem snúa að því að vinna við krefjandi vetraraðstæður. Farið yfir búnað, nesti, öryggisatriði og líkamlegt ástand sem þarf til ferða að þessu tagi. Nemendur lögðu af stað í ferðina sjálfa í dag og eru í gönguferðum og við skíðaiðkun í Skálafelli.