STÆR1FO04 – Stærðfræði

Námsgrein: Stærðfræði

Heiti
Stærðfræði, fornám 1
Þrep
1
Einingafjöldi
4
Undanfari
C eða C+ í grunnskóla
Í boði
Haust

Í áfanganum er lagður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og byggt er ofan á grunn sem nemendur hafa lært í grunnskóla. Efni áfangans er talnareikningur, algebra og jöfnur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppsetningu og lausn á jöfnum og formúlum
  • ýmsum reglum og beitingu þeirra
  • mengjahugtökum
  • algebru, svo sem liðun og þáttun
  • eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins
  • notkun upplýsingatækninnar við lausn verkefna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja upp og leysa jöfnur og formúlur
  • nota mismunandi reglur stærðfræðinnar þegar við á
  • vinna með tugveldisrithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
  • nota mengjatákn
  • liða, þátta og reikna veldi
  • nota ýmis forrit við lausn verkefna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita jöfnum og formúlum á réttan hátt við lausn ýmissa verkefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
  • beita skipulögðum aðferðum við leit á lausnum á þrautum
  • að miðla lausnum á verkefnum með hjálp upplýsingatækninnar

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.