Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mengjahugtökum og mengjaaðgerðum.
- algebru, svo sem liðun, þáttun og styttingu brota, veldum og rótum.
- hvernig hægt er að leysa orðadæmi með jöfnum og jöfnuhneppum.
- eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, svo sem hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins og skurðpunkts tveggja lína.
- línulegum líkönum og myndrænum lausnum jöfnuhneppa.
- hringjum og skurðpunktum snertla við hringi.
- notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota mengjatákn.
- liða, þátta og stytta algebrubrot, reikna veldi og rætur.
- setja fram línuleg líkön og vinna með þau.
- nota reiknivélar og forrit af öryggi og að beita þeim við útreikninga og til að leysa jöfnuhneppi .
- vinna með fleygboga og skilji hvernig þeir líta út.
- nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu máli eða myndrænt.
- setja sig inn í og túlka röksemdir annarra.
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
- beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar og lausnir.
- klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka.
- skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og beita einföldum röksemdum.
- átta sig á gildi stærðfræðinnar í öðrum námsgreinum svo sem náttúrufræði.
- miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.