Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim með myndritum, einkennistölum fyrir gagnasöfn, dreifingu og undirstöðuatriði líkindareiknings. Þegar grunnskilningur er nægur verður áhersla lögð á raunveruleg verkefni sem tengjast málefnum í samfélaginu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- undirstöðuhugtökum úr lýsandi tölfræði
- helstu hugtökum um gagnasöfn, s.s. tíðasta gildi, venjulegt meðaltal, vegið meðaltal og miðgildi
- helstu hugtökum um dreifingu gagnasafns, s.s. seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik
- líkindahugtakinu og hugtökunum útkoma, atburður og útkomurúm
- hugtökunum samantekt og umröðun
- fylgnihugtakinu
- nýtingu stafrænnar tækni í vinnu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna tíðnitöflur úr gefnu gagnasafni
- að setja tíðnidreifingu fram á myndrænan hátt
- reikna helstu gildi sem lýsa gagnasöfnum, s.s. tíðasta gildi, venjulegt meðaltal, vegið meðaltal og miðgildi
- reikna helstu gildi um dreifingu gagnasafns, s.s. seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik
- nota töflureikna til að vinna úr tölfræðilegum gögnum
- vinna með samantektir og umraðanir
- reikna fylgni
- reikna út líkindi á gefnum atburði í einföldu líkindarúmi
- setja fram niðurstöður á starfrænu formi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita fjölbreyttum vinnubrögðum og gagnrýnum viðhorfum við vinnslu tölfræðilegra gagna
- taka tölfræðiupplýsingum með gagnrýnu hugarfari og vera meðvitaður um misbeitingu tölfræðinnar, s.s. varðandi prósentureikning og myndræna framsetningu
- miðla upplýsingum á stafrænan hátt.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.