Vigrar, hornaföll, hornafallareglur fyrir þríhyrninga, hornafallajöfnur, keilusnið, almenn jafna beinnar línu, fjarlægð punkts frá línu, umritun hornafalla , gröf hornafalla og radíanar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lotubundnum föllum og hornaföllum
- undirstöðureglum talningarfræðinnar
- jöfnum hrings og sporbaugs
- hornafræði þríhyrninga, stefnuhorni línu, sínusreglu, kósínusreglu og flatarmálsreglu
- almennri skilgreiningu hornafalla, bogamáli og umritunarreglum hornafalla
- vigurreikningi í sléttum fleti, summu, mismun og innfeldi tveggja vigra og lengd vigurs, horni milli vigra og hjá samsíða og hornréttum vigrum
- notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
- þekkja jöfnur keilusniða
- reikna með vigrum
- meðhöndla hornaföll og hornafallareglur
- leysa talningarfræðileg vandamál
- meðhöndla lotubundin föll og gröf þeirra, finna t. d. lotu og útslag
- nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum
- útskýra hugmyndir sínar og verk á skilmerkilegan hátt
- miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.