Efni áfangans er vísis- og lograföll, markgildi og deildun algengra falla. Fjallað er um deildun og markgildi í sögulegu samhengi og hagnýt verkefni sem leysa má með deildareikningi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- raunföllum, þekki til vísis- og lografalla
- markgildum falla og kannist við samfelldnihugtakið
- deildareikningi og kunni helstu reiknireglur um deildun
- notkun deildareiknings til að kanna föll
- lausnum jafna sérhæfðra falla s.s. á hornafalla- og lograjöfnum
- deildun falla s.s. vísisfalla, lografalla og samsettra falla
- notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skeyta saman einföld föll og reikna út skurðpunkta, og hallatölur snertla við föllin
- reikna einföld markgildi og sjá hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða deildanlegt
- leysa há- og lággildisverkefni og önnur venjuleg verkefni sem krefjast notkunar á afleiðu, s.s. í sambandi við hraða og hröðun
- vinna með afleiður til að leiða út formúlur fyrir afleiður falla
- nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega og geta rökstutt og skýrt niðurstöður sínar við aðra
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu ýmissa verkefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- beita skipulegum aðferðum við að vinna með ýmis viðfangsefni og geta notað jöfnur við lausn þeirra.
- miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.