Vörður

Námsmat í MB er fyrst og fremst leiðsagnarmat en formleg annarpróf í lok anna eru ekki til staðar heldur eru nemendur metnir jafnóðum allan námstímann. Þeir fá endurgjöf tvisvar  sinnum á önn á svokölluðum Vörðum. Á vörðum er notast við þriggja stiga skala; mjög gott – í lagi – ófullnægjandi, ásamt skriflegum ábendingum frá kennara.  Í matinu er notast við flest þekkt mælitæki í skólastarfi, t.d. ígrundun kennarans, munnleg- og skrifleg próf, sjálfsmat, verkefni af ýmsum toga og virkni nemenda í tímum. Endurgjöf kennara á vörðum endurspeglar því ekki eingöngu einkunnir nemandans í viðkomandi áfanga heldur eru fleiri þættir sem liggja til grundvallar vörðumati kennara.

Mjög gott Vinnubrögð mjög góð og öllum verkefnum skilað á vandaðan hátt. Virk þátttaka í kennslustundum þar sem þekking nemendans nýtur sín. Verkefnum skilað á réttum tíma og í samræmi við leiðbeiningar. Markmiðum áfangans er náð.
Í lagi Vinnubrögð góð og verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í kennslustundum og virkni í meðallagi. Ekki öllum verkefnum skilað og/eða í samræmi við leiðbeiningar.  Flestum markmiðum áfangans er náð en einhverjum ábótavant.
Ófullnægjandi Vinnubrögð ófullnægjandi og verkefnaskil slök. Óvirkur þátttakandi í kennslustundum og virkni er lítil sem engin. Námsárangur uppfyllir ekki markmið áfangans.

 

Skipulag varða

Kennari

Varða 1 – munnleg og skrifleg varða – kennari ræðir einslega við alla sína nemendur – niðustöður birtar í INNU

Varða 2 – kennari gefur endurgjöf í sínum áföngum – niðustöður birtar í INNU

Umsjónarkennari

Varða 1 – fær niðurstöður frá kennara í viðkomandi áfanga – ræðir almennt við nemendur – hefur samband við foreldra/forráðamenn nýnema

Varða 2 – fær niðurstöður frá kennara í viðkomandi áfanga  – hittir nemendur og ræðir við hvern og einn, og hefur samband við foreldra/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára