Áætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitini, kynbundinni áreitni og ofbeldi
Það er stefna MB að vera góður framhaldsskóli þar sem öllum á að líða vel. Í góðum skóla er virkt upplýsingaflæði og rík áhersla lögð á kurteisi og virðingu í samskiptum. Ólíkum einstaklingum er sýnt umburðarlyndi, fordómar eru ekki liðnir og lögð áhersla á að innan skólans ríki gagnkvæm virðing allra sem þar starfa. Tekið er á vandamálum sem upp koma og viðbrögð eru markviss. Lausna er leitað í stað þess að grafa vandamál í þögn. Ólíklegra er að skaðleg samskipti eigi sér stað innan skóla þar sem starfsandi og námsumhverfi einkennast af virðingu og umburðarlyndi. Það er því á ábyrgð allra þeirra sem verða varir við einelti, áreitni og ofbeldi af einhverju tagi að koma ábendingum þar um til réttra aðila til hægt sé að vinna með málið.
Einelti, áreitni og ofbeldi hefur víðtæk áhrif á þau sem fyrir því verða, bæði andleg og líkamleg, og hefur oft neikvæð áhrif á starfsanda og vellíðan annarra í skólanum. Einelti, áreitni og ofbeldi verður undir engum kringumstæðum umborið í skólanum eða í starfi á vegum hans. Í viðbragðsáætlun hér á eftir eru leiðbeiningar um vinnulag í slíkum málum. Nemendum skal kynnt viðbragðsáætlunin í upphafi hvers skólaárs og hún höfð aðgengileg á vef skólans.
Skilgreiningar á hugtökum
1 – Einelti er endurtekin athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Ójafnvægi er milli geranda og þolanda sem upplifir sig vanmáttugan. Einelti getur verið líkamlegt og/eða andlegt og getur jafnt birst í gegnum bein samskipti og í gegnum netmiðla s.s. Facebook, Twitter og Snapchat.
Dæmi um einelti (ekki tæmandi listi):
- Illgjörn stríðni, endurteknar uppnefningar eða baktal.
- Nemandi er lítllækkaður, útlokaður eða tekinn fyrir.
- Myndir eða myndbönd af einstaklingi send með smáforritum og/eða á samskiptasíðum á Netinu gegn vilja hans.
- Meiðandi sögusögnum er komið af stað.
Undir einelti fellur EKKI skoðanaágreiningur eða hagsmunaárekstur sem kann að rísa á milli tveggja eða fleiri nemenda (eða nemenda og kennara) nema hann sé viðvarandi eða endurtekinn. Hins vegar er mikilvægt að leysa slík mál án tafar áður en þau þróast til verri vegar.
2 – Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
Dæmi um kynbundna áreitini (ekki tæmandi listi):
- Smættandi tal eða brandarar um kyn nemenda.
- Mismunun eða útilokun nemenda vegna kynhneigðar, kynvitundar eða kyntjáningar.
3 – Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna.
Dæmi um kynferðislega áreitini (ekki tæmandi listi):
- Orðbundin, táknræn eða líkamleg kynferðisleg áreitni, s.s. dónalegir brandarar, kynferðislegar athugasemdir, augnagotur eða gláp, óviðeigandi snerting eða tilraunir til kynferðislegra athafna.
4 – Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.
Dæmi um ofbeldi (ekki tæmandi listi):
- Hótanir og líkamlegt ofbeldi, s.s. að slá, sparka eða hindra.
5 – Kynferðisobeldi: Brot gegn kynfrelsi einstaklings sem lýst eru refsiverð í XXII. kafla almennra hegningarlaga https://www.althingi.is/lagas/nuna/1940019.html
6 – Þolandi: Sá sem telur sig verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilegri háttsemi.
7 – Gerandi: Sá sem kvörtun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilega háttsemi beinist að.
Viðbrögð við einelti / áreitni / ofbeldi
Nemandi sem verður fyrir einelti, ofbeldi, kynbundinni eða kynferðislegri áreitni af höndum starfsmanns eða samnemanda getur leitað til námsráðgjafa eða hvers þess starfsmanns sem hann treystir best (kennara, eða stjórnanda) og sá aðili skal koma málinu áfram til námsráðgjafa (með leyfi nemandans).
Allir aðilar skulu taka kvörtun alvarlega og sýna þolanda fullan trúnað og tillitsemi. Öllum aðilum þarf að vera ljóst hvernig tekið er á kvörtun, við hverju megi búast og hvenær – bæði fyrir þann sem ber upp kvörtunina og hinn sem kvartað er undan. Lögð verður áhersla á að leysa málið hið fyrsta og koma í veg fyrir frekara einelti/áreitni/ofbeldi. Bregðast skal við kvörtun nemanda samkvæmt eftirfarandi viðbragðsáætlun:
Fyrstu viðbrögð
- Sá aðili sem leitað er til fer yfir málið í ró og næði með þolandanum. Ef ekki er um námsráðgjafa að ræða, skal útskýrt fyrir nemendanum að best sé að fá námsráðgjafa með í málið (þó alltaf með leyfi þolanda).
- Strax er metin þörf þolanda fyrir bráðan stuðning og hann veittur. Þolandi og námsráðgjafi ákveða í sameiningu hvort ástæða er til að fá stuðning utanaðkomandi fagaðila. Ef um alvarlegt ofbeldi er að ræða skal hafa samband við lögreglu.
- Þolandi og námsráðgjafi ákveða í sameiningu hvert framhaldið verður. Hægt er að velja á milli óformlegrar eða formlegrar málsmeðferðar.
Nemendur undir 18 ára aldri
- Sé þolandi og/eða gerandi undir 18 ára aldri ber skólastjórnendum að hafa samband við forráðamenn, hvort sem um formlega eða óformlega málsmeðferð er að ræða.
- Aðili sem verður var við kynferðislegt ofbeldi eða áreitni gagnvart barni ber lagalega skyldu til að tilkynna grun sinn til barnaverndaryfirvalda, samkvæmt 17. grein Barnaverndarlaga nr. 80/2002. Þessi tilkynningaskylda gengur framar trúnaðarskyldu skólastarfsfólks.
- Gert er ráð fyrir að tilkynnt sé í nafni skólans, en ekki starfsmanns, og skulu skólastjórnendur ávallt hafðir með í ráðum við slíka tilkynningu. Samkvæmt 19. grein barnaverndarlaganna nýtur stofnunin ekki nafnleyndar. Að jafnaði skal samband haft við forráðamenn nemanda og þeim gerð grein fyrir tilkynningunni, nema meintur gerandi sé forráðamaður.
Óformleg málsmeðferð
Slík málsmeðferð felur í sér að leitað er upplýsinga hjá þolanda og honum veittur stuðningur með trúnaðarsamtali eða ráðgjöf. Málið er skráð en aðrir innan skólans eru ekki upplýstir um málið.
Formleg málsmeðferð
Gerð er hlutlaus athugun á málsatvikum og rætt við þolanda, geranda og aðra sem veitt geta upplýsingar um málið. Farið er yfir málsatvik og gögn lögð fram ef við á. Hlusta skal á sjónarmið allra aðila og gæta trúnaðar og tillitssemi. Skólastjórnendur/námsráðgjafi boða fundi og meta hvaða aðila þarf að ræða við, halda utan um gögn er málið varðar og skrá fundagerð. Í lok hvers fundar fá öll viðstödd að lesa yfir og skrifa undir fundargerðina. Gögnin eru geymd í möppu á skrifstofu skólameistara.
- Haldinn er fundur með þolanda. Forráðamenn eru boðaðir ef nemendur eru yngri en 18 ára. Meta þarf hver önnur ættu að koma á fundinn.
- Haldinn er fundur með meintum geranda. Forráðamenn eru boðaðir ef nemendur eru yngri en 18 ára. Meta þarf hver önnur ættu að koma á fundinn.
- Rætt er við aðra sem geta veitt upplýsingar um málið, t.d. samnemendur og/eða starfsfólk, án þess að draga fleiri inn í málið en nauðsynlegt er.
- Rétt er að ræða við einn aðila í senn. Aldrei er rætt við þolanda og geranda saman.
- Upplýsingar úr viðtölum og aðrar upplýsingar sem fengnar eru munnlega ber að skrá.
- Í einhverjum tilvikum er nauðsynlegt að afla gagna. Mikilvægt er að leita upplýsinga um tímasetningar og fá fram gögn ef einhver eru, s.s. tölvupóst, sms-skilaboð eða annað.
- Gæta skal þess að upplýsa þolanda um framvindu málsins eins og kostur er á meðan unnið er að lausn þess.
Niðurstöður formlegrar málsmeðferðar
Þegar könnun málsins er lokið eru niðurstöður málsins kynntar geranda og þolanda.
Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti, áreitni eða ofbeldi þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins:
- Sem dæmi um afleiðingar má nefna áminningu, brottvikningu nemanda úr áfanga og/eða brottvikningu tímabundið úr skóla.
- Gerendur og þolendur fá stuðning og leiðsögn innan MB. Ef ástæða er til er nemendum vísað áfram til fagaðila utan skólans.
- Málinu er fylgt eftir og fylgst með samskiptum aðila málsins. Námsráðgjafi kallar gerendur og þolendur til sín sitt í hvoru lagitil að ræða stöðu mála að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörkin eru ákveðin á fundum með aðilum málsins.
- Láti gerandi ekki af eineltinu leiðir það til áminningar og hugsanlega brottreksturs úr skóla.
- Ekki er þörf á formlegri áminningu eða í tilfellum þar sem vafi leikur á réttmæti ásakana.
- Sáttaumleitun er mikilvæg þegar atvik hafa verið upplýst.
Í vinnslu (síðast breytt janúar 2023).