Umsjón

Umsjón með nemendum

Í Menntaskóla Borgarfjarðar hafa nýnemar sérstakan umsjónarkennara. Umsjónarkennari veitir upplýsingar um áfangakerfið, námsframboð og þá þjónustu sem skólinn veitir. Hann aðstoðar nemendur við gerð námsáætlana og fylgist með ástundun þeirra og námsgengi.

Umsjónarfundir/fundir með kennurum eru tvisvar sinnum á önn og er skyldumæting í þá.

Umsjónarfundir á vorönn 2025:

Miðvikudagur 19. febrúar – Munnleg varða nr. 1 – einstaklingsviðtöl kennara og nemenda, eftirfylgni með mætingum.

Miðvikudagur 9. apríl – Munnleg varða nr. 2 – einstaklingsviðtöl kennara og nemenda, eftirfylgni með mætingum.