Umsjón með nemendum
Í Menntaskóla Borgarfjarðar hafa nýnemar sérstakan umsjónarkennara. Umsjónarkennari veitir upplýsingar um áfangakerfið, námsframboð og þá þjónustu sem skólinn veitir. Hann aðstoðar nemendur við gerð námsáætlana og fylgist með ástundun þeirra og námsgengi.
Umsjónarfundir/fundir með kennurum eru tvisvar sinnum á önn og er skyldumæting í þá.
Umsjónarfundir á haustönn 2024:
Miðvikudagur 2. október – Munnleg varða nr. 1 – einstaklingsviðtöl kennara og nemenda, eftirfylgni með mætingum.
Miðvikudagur 13. nóvember – Munnleg varða nr. 2 – einstaklingsviðtöl kennara og nemenda, eftirfylgni með mætingum.