Það er að mörgu að hyggja við upphaf skóla og ekki síst hjá nýnemum. Það er mikilvægt að allir nemendur og foreldrar/forráðafólk kynni sér reglur, stoðþjónustu og allt það sem er í boði í nýjum skóla.
Við í MB leggjum mikla áherslu á góð samskipti og vináttu og slíkt gengur best ef allir hlíta sömu reglum og sýna hver öðrum virðingu. Vellíðan í skóla er grundvöllur fyrir góðum árangri og framförum í námi. Við leggjum áherslu á mikilvægi þess að skóli og ástundun náms sé í fyrsta sæti, sýnum metnað í námi og gerum alltaf betur!
Hér að neðan eru svo nokkur atriði sem vert er að hafa í huga við upphaf skóla.
Bókalisti
Bókalista má finna hér https://menntaborg.is/namid/bokalistar/ (nöfn áfanga má sjá í INNU)
Mötuneyti
Hægt er að skrá sig í mat í mötuneyti skólans og hvetjum við alla til nýta sér þann möguleika. Hægt er að velja sér hvaða daga er verið í mat en við vissulega mælum með að vera í mat alla daga alla mánuði fram á vor, enda maturinn góður og hollur. Matseðill verður birtur á heimasíðu skólans í ágúst.
Stoðþjónusta
Elín Kristjánsdóttir námsráðgjafi. Tímapöntun á skrifstofu eða í tölvupósti. Sjá nánar hér: https://menntaborg.is/thjonusta/namsragjafi/
Íris Björg Sigmarsdóttir, skólahjúkrunarfræðingur. Hún er með viðveru í skólanum aðra hverja viku. Nánari upplýsingar um tímapantanir koma síðar.
Sálfræðiþjónusta: Sjá nánar hér: https://menntaborg.is/thjonusta/salfraedithjonusta/
Skólareglur
Það er mikilvægt fyrir alla að kynna sér skólareglur í MB. Hér erum við öll jöfn og förum eftir reglum til að tryggja góð samskipti.
Reglur um skólasókn – https://menntaborg.is/namid/skolasokn/
Skólareglur – https://menntaborg.is/namid/skolareglur/
Verkefnaskil – https://menntaborg.is/namid/verkefnavinna-og-verkefnaskil/
Kennslukerfi
Kennslukerfi skólans er Moodle, Hér má finna leiðbeiningar um skráningu inn á Moodle. Hvernig á að skrá sig inn á Moodle H23
Nemendaskráningarkerfi.
Nemendur sjá sína stundaskrá og áfanga þar, eins er þar að finna námsferil og lokaeinkunnir hvers áfanga.
https://inna.is/