Menntaskóli Borgarfjarðar vill stuðla að góðu heilbrigði nemenda og starfsmanna með því að setja sér framsækna heilsustefnu í allra þágu. Skólinn leggur áherslu á velferð nemenda, líkamlega, andlega og félagslega. Í skólanum er boðið upp á heilnæmt fæði, morgunverð og hádegisverð. Skólinn er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskólar. Skólinn vinnur í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um almenna þjónustu við nemendur og starfsfólk. Skólinn stuðlar að aukinni þátttöku starfsfólks í íþróttum og hollri hreyfingu.
Meginmarkmið heilsustefnunnar eru eftirfarandi:
- Að efla vitund fólks um mikilvægi góðrar heilsu líkamlega, andlega og félagslega.
- Að styrkja heilsueflingu starfsmanna og nemenda.
- Að hvetja til heilbrigðra lífshátta.
- Að stuðla að því að allur aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustað verði eins og best verður á kosið.
- Að efla þekkingu á leiðum til að viðhalda góðri heilsu og heilbrigði.
- Að koma í veg fyrir fjarveru starfsfólks frá vinnu vegna leiða eða líkamsástands.
Heilsuefling
- Skólinn sýni fordæmi hvað varðar mikilvægi hollrar næringar.
- Reykingar og önnur tóbaksnotkun eru óheimil í húsnæði og á lóð skólans.
- Reglulega býður skólinn upp á fyrirlestra um heilsueflingu og líkamsrækt.
- Að stuðla að aukinni vatnsneyslu nemenda og starfsmanna. Vatnsbrunnar eru í skólanum bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
- Notkun áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil.
Starfsfólk
- Starfsmönnum verði árlega boðið upp á flensusprautu.
- Skólinn greiðir leið starfsmanna til þess að þeir geti sótt tíma í líkamsrækt.
Nemendur
- Að nemendur þekki mikilvægi hollrar næringar út frá manneldismarkmiðum og hafi tækifæri til að nýta sér þá þekkingu til að efla eigið heilbrigði.
- Að efla vellíðan nemenda; líkamlega, andlega og félagslega.
- Skólinn mun í hvívetna vinna markvisst starf í þágu forvarna og kynna fyrir nemendum skaðsemi vímuefna.
- Koma í veg fyrir að einelti og andlegt ofbeldi eigi sér stað með markvissum umræðum um afleiðingar þess og aðgerðum.
- Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar í Borgarnesi aðstoðar nemendur ef upp koma vandamál er tengjast líkama og sál. Hjúkrunarfræðingurinn vinnur í nánu samstarfi við skólastjórnendur, kennara og námsráðgjafa með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.