Ráðstefna þann 17. apríl 2024

Áhersla á STEM og STEAM nám og kennslu

VIÐ HÖFUM LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGU

 

09:30 Morgunhressing í boði MB
10.00 Setning Bragi Þór Svavarsson, skólameistari.
10.10 Ávarp Mennta- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason.
10.30 STEM/STEAM – Hvað, af hverju og hvernig?

Í þessu erindi verður farið örstutt yfir skilgreiningarnar á STEM og STEAM, kennsluaðferðum þeirra og muninum þar á milli.

 

Martin Jónas Björn Swift, verkefnisstjóri á sviði náttúru- og tæknigreinamenntunar á Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Ragna Anna Skinner, verkefnisstjóri STEAM menntamiðlunar.
11.00 Þróun STEAM náms og kennslu í MB

Nálgunin í erindinu eru reynslusögur úr tilraunakennslu STEAM áfanga og rætt um áskoranir og gleðistundir, nemenda og kennara.

Signý Óskarsdóttir, verkefnastjóri skólaþróunar MB.
11:30 Skóli til hvers? 

Í erindinu fjallar Helena um eigin reynslu, breytt hlutverk og helstu áskoranir skólakerfisins.

Helena Guttormsdóttir er lektor við landslagsarkitektabraut Landbúnaðarháskóla Íslands og hefur komið að kennslu og náskeiðahaldi fyrir öll skólastig, auk fjölda nýsköpunarverkefna.
12:00 Hádegismatur
13:00 Vinnustofur hefjast Skráning í vinnustofur er nauðsynleg, sjá neðar á þessari síðu.

Hér er lýsing á vinnustofunum. Athugið að síðustu tvær vinnustofurnar á listanum taka 80 mínútur. 

13:00 – 13:40 Umsjón Staðsetning
Sjálfsmynd og seigla í skapandi skólastarfi:

Hvernig getur sjálfsmynd og sjálfsþekking verið lykillinn að seiglu og mögulega haft áhrif á skapandi skólastarf? Fræðsla og æfingar.

 

Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, B.Sc. í íþróttafræði og diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.

Stofa 203
Sjónarafl – Myndlæsi:

Kynning á kennsluefninu Sjónarafli sem miðar með markvissum hætti að því að tengja kennslu í myndlæsi og listasögu. Þjálfun í myndlæsi eykur hæfni í tjáningu, virkri hlustun, hugtakaskilningi og gagnrýnni hugsun.

Einnig verður fjallað verður um þverfaglega verkefnið Ísabrot, þar sem myndlist og vísindi mætast í í skapandi vinnu nemenda og listamanna.

Ingibjörg Hannesdóttir, sérfræðingur í fræðslu og miðlun hjá Listasafni Íslands. Stofa 202
Saman erum við sterkari:

Kynning á STEM og STEAM námsvistkerfum með áherslu á samfélagsþátttöku.

Huld Hafliðadóttir og Bridget E. Burger frá STEM Ísland. Kjallari
  Stutt kaffipása
13:50 – 14:30 Umsjón Staðsetning
Tónlist og forritun:

Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast tónlistarsköpun í gegnum forritun í Tunepad og skapa sín eigin tónverk. Í þessa vinnustofu eru þátttakendur beðnir að koma með tölvu.

Kári Halldórsson, aðjúnkt við tölvunarfræðideild HR. Stofa 202
Breakout Edu – hugsað út fyrir kassann:

Breakout Edu svipar til flóttaleikja (e. escape rooms) nema aðlagað að skólastofunni.  Þátttakendur lenda í  vanda og þurfa að hugsa út fyrir kassann til þess að komast inn í kassann og bjarga þannig mögulega heiminum. Eflir þrautseigju og lausnaleitarhugsun en svo er þetta líka svo gaman!

Nanna María Elfarsdóttir, umsjónakennari í Brekkubæjarskóla. Stofa 203
Geocamp: Stuðningur við innleiðingu STEM kennsluaðferða í skólum.

Hvað er STEM/STEAM og hvað þýðir það fyrir kennara? Hvernig getum við stigið inn í sköpunargleði og nýsköpun í skólastarfi, án þess að gefa afslátt af þekkingunni sem nemendur þurfa að tileinka sér.

Sigrún Svafa Ólafsdóttir, kennari og verkefnastjóri. Kjallari
13:00 – 14:30 (80 mínútur) Umsjón Staðsetning
Vísindi og listsköpun:

Vinnustofan er verkleg og mun nýta aðferðir myndlistar til að takast á við málefni loftslagsbreytinga og sjónum sérstaklega beint að hnignun jökla. Unnið er með aðferðum leitarnáms og skapandi nálgunar með tengingu við aðalnámskrá og verkefnatillögur.

Dr. Ásthildur Jónsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður, listakona og sýningarstjóri. KVIKA
Stærðfræði og listsköpun:

Vinnustofan er verkleg og unnið verður  með tengingu stærðfræði og lista með áherslu á fjölbreytta kennsluhætti og skapandi starf. Þátttakendur fá að spreita sig á hringfaraverkefnum, vinna með gullinsnið, fibonacci rununa, þökun/Escher, Origami og fleira.

Borghildur Jósúadóttir, kennari og listakona. Stofa 201