ATHUGIÐ AÐ BYGGING NÝRRA NEMENDAGARÐA STENDUR YFIR.
Menntaskóli Borgarfjarðar er meirihlutaeigandi Nemendagarða MB hses. Það félag hefur fest kaup á 12 íbúðum á neðstu hæð Borgarbrautar 63.
Um er að ræða tólf „herbergi“ eða stúdíóíbúðir, þar af ein innréttanleg fyrir hreyfihamlaða, sem eru af stærðargráðunni 17-26 fermetrar hver, með svefn-, eldunar-, bað- og salernisaðstöðu.
Úthlutunarreglur/forgangur miðast við eftirfarandi:
- Nemendur eiga lögheimili í dreifbýli Borgarbyggðar.
- Nemendur undir 18 ára aldri.
- Námshlutfall nemanda á leigutíma. Nemandi í fullu námi gengur fyrir.
- Nemendur utan Borgarbyggðar.
Ef tveir eða fleiri umsækjendur uppfylla jöfn skilyrði skal dregið úr potti hver fær úthlutun. Miðað er að nemendur sem fá vistarpláss njóti þess í a.m.k. tvö skólaár. Þetta er þó háð því að þeir uppfylli allar reglur um umgengni á heimavist.
Sjá gjaldskrá hér; Gjaldskrá – Menntaskóli Borgarfjarðar
Ef nemendur MB fá ekki inni á Nemendagörðum, leitum við allra leiða til að útvega húsnæði sem hentar. Hafið samband við skólameistara