Steinþór Logi dúx við brautskráningu

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Í dag var brautskráning Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem 27 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af Félagsfræðabraut, Náttúrufræðibraut, Íþróttafræðibraut bæði af félagsfræða- og náttúrufræðasviði og af opinni braut. Hæstur á stúdentsprófi að þessu sinni var Steinþór Logi Arnarsson. Steinþór fékk fjölmargar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur þar á meðal fyrir besta námsárangur á stúdentsprófi og vandaðasta lokaverkefnið. Svava Sjöfn Kristjánsdóttir sem kláraði stúdentspróf um áramót var næsthæst á stúdentsprófi við  þessa útskrift. Fjölmargir nemendur fengu einnig viðurkenningu en starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar er einstaklega stolt af sínu fólki. Ávarp nýstúdenta að þessu sinni flutti Guðrún Gróa Sigurðardóttir. Gestaávarpið flutti Helga Halldórsdóttir sem okkur þótti viðeigandi á þessum tímamótum þegar við útskrifum í tíunda sinn þar sem Helga var formaður byggingarnefndar Menntaskóla Borgarfjarðar. Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með daginn og óskum þeim velfarnaðar í því sem þeir taka sér fyrir hendur með þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.