Á Íþróttafræðibraut er megináherslan á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarna á Félagsfræðabraut. Í kjarna brautar er lögð áhersla á eftirfarandi grunnþætti; læsi, sköpun og sjálfbærni auk áherslu á heilbrigði og velferð. Um er að ræða 200 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími er að jafnaði 6 annir. Á íþróttafræðibraut er hægt að velja á milli tveggja leiða; félagsfræðasvið eða náttúrufræðisvið. Íþróttafræðibraut er ætlað að veita nemendum undirbúning undir leiðbeinendastörf hjá íþróttafélögum og frekara nám á háskólastigi í íþrótta-, kennslu- og heilsufræðum.
Íþróttafræðibraut samkv. námskrá.
Mat Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á námi í framhaldsskóla
Nemandi sem lokið hefur ÍÞRF1ÞÞ06 og tveimur einingum í íþróttagrein (ÍÞRG-1…X2) getur fengið nám sitt metið sem þjálfari 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Nemandi sem lokið hefur 42 einingum í íþróttagreinum, íþróttafræðum og starfsþjálfun úr framhaldsskólum getur fengið almennan hluta af þjálfarastigi 2 metinn hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.
Mat framhaldsskóla á námi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
Nemandi sem lokið hefur þjálfarastigi 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands getur fengið nám sitt metið sem jafngildi ÍÞRF1ÞÞ06 og ÍÞRG1…X2.