Árshátíð NMB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Árshátíð Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) var haldin hátíðleg þriðjudagskvöldið 10. febrúar. Veislustjóri var Jón Jónsson og fórst honum það verkefni vel úr hendi.  Foreldrar sáu um framreiðslu veitinga og frágang eins og hefð er fyrir.

Skemmtiatriði voru af ýmsum toga, nemendur sýndu myndband þar sem gert var góðlátlegt grín að nemendum og starfsfólki, skellt var í spurningakeppni og nemendur og kennarar voru með frábær dans- og söngatriði.  Einnig tóku nemendur og starfsfólk lagið saman undir stjórn Jóns Jónssonar. Nemendur og starfsfólk skemmtu sér því konunglega saman yfir borðhaldi og skemmtiatriðum.  Stjórn NMB og skreytinganefnd stóðu sig afar vel í undirbúningi fyrir árshátíðina. Takk öll fyrir frábæra skemmtun.