Núna stendur yfir bókasöfnun hjá Menntaskóla Borgarfjarðar í því augnamiði að bæta bókakost bókasafns skólans. Snorri Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslustjóri, færði skólanum veglega bókagjöf árið 2008, sem hefur nýst skólanum mjög vel.
Víða er góður bókakostur í fórum fólks, sem ekki er mikið notaður. Menntaskóli Borgarfjarðar hefur á að skipa ungu fólki sem þyrstir í bóklestur. Skólinn hefur fengið góðar bókagjafir en enn standa margar hillur auðar.
Allir sem vilja hjálpa okkur að efla bókakost skólans hafi samband í síma 433 7700