ERASMUS

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar sótti á haustmánuðum um Erasmus+ aðild (accreditation) og fékk samþykki til þriggja ára. Sú aðild gefur skólanum tækifæri á að sækja um aðildarverkefni fyrir hvert ár og höfum við þegar hafist handa við að móta áætlun fyrir næstu ár sem fela í sér náms- og þjálfunarverkefni fyrir nemendur og starfsfólk.

Í tengslum við þessar umsóknir hafa meðlimir Erasmus-teymisins, Elín Matthildur Kristinsdóttir og Sölvi G. Gylfason, setið námskeið og fengið ráðgjöf varðandi umsóknarferlið og utanumhald. Einnig fór Sölvi á fjölþjóðlega vinnustofu fyrir nýjar aðildarstofnanir sem fengu aðild árið 2024 eða 2025. Vinnustofan var haldin í Øystese, Noregi, dagana 10-13. mars 2026. Þar var farið yfir ýmis praktísk mál sem snúa að aðildinni auk þess sem tengslum var komið á við aðra forsvarsmenn mögulegra samstarfsskóla.“